Árið 2014 var stikuð gönguleið á milli Einkunna og Borgar. Stígar voru opnaðir og settir A-stigar yfir girðingar á tveimur stöðum. Gönguleiðin liggur yfir Borgarlækinn á fjórum stöðum. Ábendingar komu til umsjónarnefndarinnar að á tveimur stöðum væri erfitt að þvera lækinn. Brugðist var við þessum ábendingum nú í vetur þegar frost var í jörðu og trjádrumbar úr skóginum í Einkunnum lagðir yfir lækinn, þannig að nú er stígurinn greiðfærari. Við þessa vinnu fundust tóftir og minjar af mannvirkjum sem þeir sem að stígagerðinni unnu höfðu ekki skýringu á.
Í upphafi árs 2015 hófst skráning á minjum í Einkunnum og vinnur Fornleifastofnun Íslands verkið fyrir umsjónarnefnd Einkunna. Í upphafi þeirra vinnu var athygli nefndarinnar vakin á skýrslu sem stofnunin vann fyrir Borgarbyggð árið 2009 og heitir Fornleifaskráning á völdum jörðum í Borgarbyggð. Í skýrslunni kemur fram að minjar eru nokkrar við ný stikaða gönguleið, t.d. beitarhús, vörður, sel, og smalahús. Stuttir kaflar úr skýrlsunni sem greina frá minjum á gönguleiðinni eru HÉR
Hægt er að nálgast skýrsluna í heild sinni HÉRNA og lesa sér til um minjar á „völdum stöðum“ í Borgarbyggð.