Álatjörn
Innan fólkvangsins er Álatjörn, hún er 264 x 302 metrar (þar sem hún er breiðust) að stærð eða um 6 hektarar og er í um 40 metra hæð yfir sjó. Umhverfi tjarnarinnar er fallegt og kjörið til útivistar og náttúruskoðunar. Tjörnin var ræst fram 1973 og við það hvarf hún að mestu en var svo endurheimt haustið 1994, af Guðmundi Finnssyni verkstjóra hjá áhaldahúsi Borgarnessbæjar og samstarfsmönnum hans. Þá um haustið slepptu þeir um 4000 bleikjuseiðum í tjörnina. Guðsteinn Sigurjónsson og fjölskylda fengu leyfi til að reisa sér sumarhús og geymslu við tjörnina árið 1997. Guðsteinn sleppti urriðaseiðum í tjörnina og næstu ár á eftir var hægt að veiða silung í tjörninni. Við fráfall Guðsteins 2001 dróg úr að fjölskyldumeðlimir nýttu sér aðstöðuna og seldu þau sveitarfélaginu húsin 2006.