Lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í desember 2017 að auglýsa lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir Skotæfingasvæði í landi Hamars. Samkvæmt lýsingunni mun skotæfingasvæðið vera í 160 m fjarlægð frá fólkvanginum í Einkunnum, 300 m fjarlægð frá að hesthúsahverfi Borgarness, reiðhöll og gróðrarstöðin Grenigerði og 1200 m fjarlægð frá Lækjakoti þar sem rekið er listagallerí, sprotafyrirtæki og ferðaþjónusta. Það liggur fyrir að ef skotæfingasvæðið mun verða staðsett á þeim stað sem boðað er þá mun það kippa stoðunum undan starfseminni í Lækjarkoti er nóg að vitna til gallaðra skýrslu Borgarbyggðar í því sambandi. Ábúendur eru búnir að setja sig í samband við fasteignasölu til að meta eignir sínar, jörðin er metin á 250 milljónir og eru þeir komnir í samand við lögfræðistofu til að undirbúa málsókn. Fleiri hagsmunaaðilar eru að skoða sín mál. Þessi staðsetning hefur áhrif á lífsviðurværi og náttúruupplifun margra. Það mun styrkja réttarstöðu þeirra á seinni stigum gagnvart Borgarbyggð að gera athugasemdir fyrir 19. janúar. Á undirsíðum sem fylgja þessari síðu er reynt að halda utan um staðreyndir þessa máls, s.s. fréttum af málinu, greinaskrifum og reynslu íbúa í Kollafirði af skotæfingasvæðinu á Álfsnesi. |