Reynsla íbúa í Kollafirði og á Kjalarnesi er ekki góð af skotæfingasvæðinu á Álfsnesi. Reykjavíkurborg keypti m.a. upp bæinn Skriðu sem er í 2,2, km fjarlægð frá skotæfingasvæðinu, á tugi milljóna til að losa íbúa úr prísundinni (Hótel Hamar er í sömu fjarlægð frá fyrirhuguðu skotæfingasæði og Skriða er frá skotæfingasæðinu í Álfsnesi). Íbúi þar í sveit hefur komið inn í umræðuna um fyrirhugað skotæfingasvæði á samfélagsmiðlum og varar stórlega við þessari framkvæmd. Það eru 5 km frá skotæfingasvæðinu að hans heimili og þangað óma skothvellirnir, alla daga. Hvort sem það er logn, mótvindur eða meðvindur. Ég setti tvo hringi á kort, annan með 2,2 km radísu (fjarlægð Skriðu frá æfingasvæðinu á Álfsnesi) og hinn með 5 km radíus frá fyrirhuguðu skotæfingasvæði við Einkunnir (þetta er ónákvæmt kort hjá mér). Á kortinu getur fólk séð hvaða svæði lenda innan þessara hringja, s.s. hestahúsahverfið, reiðhöllin, reið- og göngustígar, fólkvangurinn Einkunnir, Langá, Hótel Hamar, kirkjan og grafreiturinn að Borg, ýmis ferðaþjónusta, sumarbústaðabyggðir og golfvöllur. Ramsarsvæði, alþjóðlegt búsvæði fugla á Hvanneyri liggur við 5 km mörkin og spurning hvaða áhrif það mun hafa á það verndursvæði? Sveitarstjórn Borgarbyggðar ætlar að taka þessa áhættu og rýra gildi þessara staða með þeim afleiðingum sem það kann að hafa í för með sér.