Skógrækt
Einkunnir voru í landi Hamars þegar Bogarneshreppur kaupir býlið, í ársbyrjun 1943. Átta árum síðar samþykkti hreppsnefndin að girða af reit í kringum Einkunnirnar og helga hann skógrækt. Skógræktarfélagið Ösp var stofnað í þeim tilgangi að hafa umsjón með skógræktinni. Undir merkjum félagsins var stunduð skógrækt í Einkunnum, í rúm þrjátíu ár. Lengstum bar Hjörtur Helgason hitann og þungann af starfinu. Hann hafði umsjón með hópum ungmenna sem komu til að planta, bæði úr unglingavinnunni og skólanum í Borgarnesi. Margir Borgnesingar eiga góðar minningar frá þessum tíma, við skógræktarstörf í Einkunnum. Frá árinu 1954 til ársins 1989 eru skráðar gróðursetningar, hjá Skógræktarfélagi Íslands á 125.330 plöntum af 11 tegundum en þeirra helstu eru rauðgreni (36.300), sitkagreni (24.745), skógarfura (21.170) og stafafura (20.650). Líklega voru fleiri plöntur gróðursettar en skráningar ná til.