Um fólkvanginn Einkunnir
Að fólkvanginum liggur 2,5 km malarvegur, frá þjóðvegi eitt í gegnun hesthúsahverfi hestamannafélagsins Skugga, gegnt golfvellinum að Hamri. Landslagið í fólkvanginum er fagurt, jökulsvorfnar klettaborgir, vöxtulegur skógur, lífvænlegar mýrar og dýra- og plöntulíf all fjölbreytt. Fólkvangurinn nær frá landi Borgar norður að Háfsvatni og Háfslækur rennur á vesturmörkum hans. Frá Háfsvatni eru austurmörk fólkvangsins merki Hamars og Holts og þaðan í girðingu um skátaskálann sem er í suðausturhorni friðlandsins. Innan fólkvangsins er Álatjörn, hún er 264 x 302 metrar (þar sem hún er breiðust) að stærð eða um 6 hektarar og er í um 40 metra hæð yfir sjó. Umhverfi tjarnarinnar er fallegt og kjörið til útivistar og náttúruskoðunar.