Einkunnir - Borg
Göngustígurinn hefst við bílastæðið við Álatjörn, í Einkunnum. Stígurinn liggur upp á Syðri-Einkunn þar sem eru Landnámsvarða og útsýnisskífa. Af Syðri-Einkunn er mjög víðsýnt, m.a. er hægt að sjá fimm jökla. Þaðan liggur stikaður stígur með skurði sem er landamerki á milli Borgar og Einkunna. Þegar komið er að þverskurði er göngufólk komið að landamerkjum við Kárastaði og halda þá í vestur átt um hollt og birkirjóður eftir stikaðri leið. Á göngunni má sjá tóftir sem eru líklega að beitarhúsum, á að minnsta kosti tveimur stöðum. Á einu holtinu eru tóftir af gömlu fylgsni sem refaskyttur hafa líklega komið sér upp. Þetta er falleg leið með góðum útsýnisstöðum þar sem víðsýnt er um Borgarfjörð og Mýrar. Þegar komið er inn í land Borgar taka við mýrar og þarf göngufólk því að vera vel skóað til ferðarinnar. Gönguleiðin endar á klettaborginni við Borg þar sem má sjá árangur af skógræktar prestsins að Borg, séra Þorbjörns Hlyns og í flóanum upp af Borg má sjá tæplega 10 þús. plöntur sem grunnskólabörn úr Borgarnesi hafa plantað síðustu ár.